***** ÍBÚÐIN ER SELD *****
Nýkomin í sölu falleg 108,8 fm fjögurra herbergja íbúð ásamt 21 fm bílskúr. Íbúðin er á efstu hæð (4.hæð) með miklu útsýni.
Eignin skiptist í stórt forstofurými, eldhús með borðkrók, stofu með útsýni og svölum, svefnherbergisgang með þremur herbergjum og baðherbergi. Bílskúr er í bílskúrsröð framan við húsið.Samkvæmt þjóðskrá Íslands er birt stærð íbúðar 108,8 fm og þ.a. er geymsla 6,5 fm. Bílskúr er að birtri stærð 21,0 fm (íbúð merkt 02-0401 og bílskúr merktur 04-0109 )
Nánari lýsing: Komið er inn í stórt parketlagt forstofurými með stórum glugga og fataskáp. Dúklagt bjart eldhús með borðkrók (útsýni), ljósri innréttingu, flísar milli skápa. keramik helluborð, vegg ofn (Siemens) og er gert ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu). Parketlögð stofa með vestursvölum og miklu útsýni. Parketlagður svefnherbergisgangur. Flísalagt baðherbergi með baðkari, glugga og baðinnréttingu. Parketlagt herbergi með fataskáp. Stórt parketlagt herbergi með stórum fataskáp og svaladyrum út á vestursvalir. Parketlagt herbergi (hægt að opna og stækka stofu). Bílskúr er með hurðaropnara, hita, rafmagni og köldu vatni, (er níundi í röðini talið frá vinstri).
Húsið er nýlega viðgert og málað að utan. Nýir gluggar á suðurhlið.
Íbúðin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning.
Vel staðsett og björt íbúð með miklu útsýni.Upplýsingar veitir: Geir Sigurðsson, lögg. fasteignasali s: 655-9000
[email protected]