***** ÍBÚÐIN ER SELD *****Húsasalan og Geir Sigurðsson löggiltur fasteignasali í síma 655-9000,
[email protected], kynna:
Vel staðsett 3ja - 4ra herbergja íbúð á neðri hæð með sérinngangi, verönd með heitum pott og glæsilegu sjávarútsýni.
Íbúðin skiptist í forstofu, opið eldhús, stofu, tvö herbergi, baðherbergi, geymslu og sjónvarpsstofu. Íbúðinni tilheyrir einnig óskráð timburhús á lóðinni sem er góð útigeymsla. Mjög góð aðkoma m.a. góð bílastæði.
Samkvæmt HMS er birt stærð íbúðarinnar 100,2 fm.
Nánari lýsing: Komið er inn um sérinngang inn í stóra forstofu með gólfflísum og fataskáp. Stórt parketlagt alrými með dagstofu, borðstofu og opnu eldhúsi með gólfflísum.Mikil lofthæð og fallegt sjávarútsýni. Í eldhúsi er innrétting með ofn, tengingu fyrir uppþvottavél og eyju í eldhúsinnréttingu með gashelluborði og háf. Svaladyr er úr borðstofu út á verönd með heitum potti. Flísalagt baðherbergi er með baðkari, baðinnréttingu og tengingum fyrir þvottavél. Parketlagt hjónaherbergi með fataskáp. Parketlagt barnaherbergi. Góð geymsla. Mjög stór parketlögð sjónvarpsstofa.
** BJÖRT STOFA MEÐ OPNU ELDHÚSI, ÚTSÝNI OG MIKILLI LOFTHÆÐ.
** GOTT SKIPULAG
** VERÖND MEÐ SKJÓLVEGGJUM OG HEITUM POTTI
** ÚTSÝNI
** GÓÐ AÐKOMA OG SÉR INNGANGURNánari upplýsingar um eignina veitir: Geir Sigurðsson löggiltur fasteignasali í síma 655-9000, [email protected].