***** Íbúðin er seld *****
Glæsileg þriggja herbergja íbúð á efstu hæð (penthouse) með tvennum svölum, góðu útsýni og bílastæði í bílageymslu. Bókið einkaskoðun í síma 655-9000 eða á netfangið [email protected] - Geir Sigurðsson lögg.fasteignasali sýnir eignina.Húsið er fimm hæða nýlegt lyftuhús með lokaðri bílageymslu í vinsælu hverfi í Urriðaholtinu.
Íbúðin skiptist í opið eldhús, stofu, tvö herbergi og baðherbergi. Geymsla íbúðarinnar er í kjallara og er innangengt úr sameign í bílageymslu.
Nánari lýsing: Parketlögð stofa og eldhús eru í opnu björtu rými með tvennum svölum og útsýni. Í eldhúsinnréttingu eru AEG tæki , nýtt helluborð, ofn, vifta, innfelld uppþvottavél, innfelldur ísskápur með frysti. Parketlagt herbergi með stórum fataskáp. Flísalagt baðherbergi með baðinnréttingu, handklæðaofni, sturtu, vegghengdu salerni og eru tengingar á baði fyrir þvottavél og þurkara. Stórt herbergi með stórum fataskáp.
** VÖNDUÐ ÍBÚÐ Á EFSTU HÆÐ
** GOTT SKIPULAG
** INNFELLD TÆKI OG EYJA Í ELDHÚSINNRÉTTINGU
** TVENNAR SVALIR
** MIKIÐ ÚTSÝNI