Rúmgóð og vel skipulögð 93,6 fm þriggja herbergja íbúð á 7.hæð, með glæsilegu útsýni. Eignin skiptist í stórt forstofurými, eldhús með borðkrók, stórt herbergi, stofu með útsýni og svölum, gang með geymsluskáp, baðherbergi og herbergi.
Samkvæmt HMS er birt stærð íbúðar 93,6 fm og þ.a. er geymsla í kjallara 6,2 fm.
Nánari lýsing: Komið er inn í stórt parketlagt forstofurými. Parketlagt herbergi. Stór parketlögð stofa með suður-svölum og miklu útsýni. Eldhús með borðkrók, gólfflísum og útsýni, upprunaleg innrétting, eldavél og er gert ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu. Parketlagður gangur, fatahengi með efri skáp. Flísalagt baðherbergi með sturtuklefa, glugga og baðinnréttingu með tengingum fyrir þvottavél. Stórt Parketlagt herbergi með fataskáp.
Nýleg lyfta í sameign. Íbúðin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning.
Vel staðsett og björt íbúð með glæsilegu útsýni.Upplýsingar veitir: Geir Sigurðsson, lögg. fasteignasali s: 655-9000
[email protected]