Opið hús: 10. febrúar 2026 kl. 17:00 til 18:00.OPIÐ HÚS milli kl. 17.00 og 18.00 þriðjudaginn 10. febrúar n.k. VERIÐ VELKOMIN
OPIÐ HÚS milli kl. 17.00 og 18.00 þriðjudaginn 10. febrúar n.k. VERIÐ VELKOMIN
Stór og rúmgóð tveggja herbergja íbúð á 2.hæð, með suðursvölum. Íbúðin skiptist í forstofuhol, svefnherbergi, baðherbergi. eldhús með borðkrók og stofu með suðursvölum. Samkvæmt skráningu HMS er birt stærð íbúðarinnar 69,5 fm og þ.a. er geymsla íbúðarinnar í kjallara 4,8 fm. Nánari lýsing: Komið er inn í parketlagt forstofurými með fatahengi. Stórt dúklagt svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi er með gólfflísum, vegghengdu salerni, baðkari og skápum við vask. Parketlögð stofa með svaladyrum út á suður-svalir. Parketlagt opið eldhús með upprunalegri eldhúsinnréttingu, ofni og helluborði. Í eldhúsi við borðkrók eru tengingar fyrir þvottavél og þurrkara. Mjög fallegt parket er á íbúðinni.
Verið er að ljúka við að einangra og klæða austurhlið hússins.
Upplýsingar veitir Geir Sigurðsson, löggiltur fasteignasali, s: 655-9000 og netfang [email protected]