Vesturbrú 1, 210 Garðabær
179.900.000 Kr.
Fjölbýli
6 herb.
181 m2
179.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2008
Brunabótamat
105.880.000
Fasteignamat
119.200.000

Mjög falleg og vönduð 5-6 herbergja 181,7 fm íbúð á 3.og 4.hæð í góðu lyftuhúsi ásamt bílastæði í bílageymslu.

Pantið einkaskoðun - [email protected]


Á 3.hæð er forstofugangur, herbergi, stofa með suðursvölum og stiga upp á 4.hæð, eldhús með borðstofu, baðherbergi og hjónaherbergi með klæðaherbergi. 
Á 4.hæð er stór sjónvarpsstofa með suður-svölum, baðherbergi og tvö stór herbergi. 

3.hæð:  Forstofugangur: Parket og stór fataskápur. Herbergi: Parket og fataskápur. Stofa: Parket og flísalagðar suður-svalir, við stofu er stigi upp á 4.hæðina. Eldhús og borðstofa:  Gólfflísar, stórt eldhús með eyju í innréttingu, steinn í borðplötum, gashelluborð, háfur, veggofn, örbylgjuofn, flísalagt milli skápa og innfelld lýsing í innréttingu. Þvottaherbergi: Gólfflísar og skolvaskur. Baðherbergi: Flísalagt, baðkar, sturtuklefi, vegghengt salerni, baðinnrétting með innfelldri lýsingu og handklæðaofn. Hjónaherbergi: Parketlagt með litlu parketlögðu fataherbergi.
4.hæð: Sjónvarpsstofa: Parket, Innfelld lýsing, suður-svalir. Baðherbergi: Flísalagt, sturtuklefi, vegghengt salerni og lítill skápur við vask. Herbergi: Parket og fataskápur. Herbergi: Parket og fataskápur.
Kjallari: Bílastæði í bílageymslu merkt B-26 með hleðslustöð. Geymsla íbúðarinnar er við bílastæðið í bílageymslu. Geymsla íbúðarinnar er  merkt hjá HMS 0012. Hjóla og vagnageymsla er á 1.hæð.

Gullfalleg og vel staðsett eign við sjávarsíðuna í Sjálandshverfinu. Mikil lofthæð er í eigninni og er gólfhiti í allri íbúðinni. Frábær staðsetningin skammt frá skólum og Jónshúsi félagsmiðstöð eldri borgara. Í nágrenninu er falleg sand-strönd með sturtu og búningsaðstöðu.

Nánari upplýsingar veitir
Geir Sigurðsson, viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali, s: 655-9000, netfang: [email protected].
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.