Opið hús: 10. mars 2026 kl. 17:00 til 18:00.OPIÐ HÚS milli kl. 17.00 og 18.00 þriðjudaginn 10. mars n.k. VERIÐ VELKOMIN
OPIÐ HÚS milli kl. 17.00 og 18.00 þriðjudaginn 10. mars n.k. VERIÐ VELKOMIN !
Stór og rúmgóð tveggja herbergja íbúð á 2.hæð, með suðursvölum. Íbúðin skiptist í forstofuhol, svefnherbergi, baðherbergi. eldhús með borðkrók og stofu með suðursvölum. Samkvæmt skráningu HMS er birt stærð íbúðarinnar 69,5 fm og þ.a. er geymsla íbúðarinnar í kjallara 4,8 fm. Nánari lýsing: Komið er inn í parketlagt forstofurými með fatahengi. Stórt dúklagt svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi er með gólfflísum, vegghengdu salerni, baðkari og skápum við vask. Parketlögð stofa með svaladyrum út á suður-svalir. Parketlagt opið eldhús með upprunalegri eldhúsinnréttingu, ofni og helluborði. Í eldhúsi við borðkrók eru tengingar fyrir þvottavél og þurrkara. Mjög fallegt parket er á íbúðinni.
Verið er að ljúka við að einangra og klæða austurhlið hússins.
Upplýsingar veitir Geir Sigurðsson, löggiltur fasteignasali, s: 655-9000 og netfang [email protected]