Seljabraut 38, 109 Reykjavík
75.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
6 herb.
136 m2
75.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1974
Brunabótamat
62.500.000
Fasteignamat
73.150.000

Björt 101,2 fm fjögurra herbergja enda íbúð á 1.hæð með garðskála og 4,7 fm geymslu auk 33,8 fm rými á jarðhæð (tvö herbergi skráð geymsla með sér inngang úr sameign), íbúðinni fylgir bílastæði í bílageymslu. Samtals er birt stærð íbúðarrýmis 139,7 fm auk bílastæðis í bílageymslu. (stærðir skv. nýjum eignaskiptasamningi)
 
Íbúðin er staðsett í fjölskylduvænu hverfi í göngufæri í matvöruverslun, leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Íbúðin skiptist í forstofurými, eldhús, lítið þvottaherbergi, þrjú herbergi þ.a. eitt herbergi opið án hurðar, baðherbergi, stofu og garðskála. Á jarðhæð er 33,9 fm rými (tvö herbergi) með góðri lofthæð, stórum gluggum og sérinngangi úr sameign. Einnig er geymsla íbúðarinnar á jarðhæð auk sameiginlegrar vagna- og hjólageymslu. Innangengt er úr sameign í bílageymslu og tilheyrir íbúðinni bílastæði, merkt 11-0101. 

Nánari lýsing: Komið er inn í forstofurými með gólfflísum og fataskápum. Við forstofurými er lítið þvottaherbergi með gólfflísum og skolvask. Eldhús er með gólfflísum, hvítri eldhúsinnréttingu, veggflísum, innfelldri lýsingu í eldhúsinnréttingu, keramik helluborði, viftu og veggofni. Öll herbergin eru með skápum og gólfflísum, eitt herbergið er opið án hurðar. Flísalagt baðherbergi er með glugga, baðkari, baðinnréttingu og vegghengdu salerni. Gólfhiti er í baðherbergi, hjónaherbergi og í eldhúsi. Á jarðhæð er 33,9 fm parketlagt rými, merkt geymsla. Rýmið er með sérinngangi úr sameign, góðri lofthæð og þremur góðum gluggum. Á jarðhæð er einnig geymsla íbúðarinnar, sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og er innangengt úr sameign inn í bílageymslu þar sem er eitt bílastæði tilheyrir íbúðinni. Einnig er í bílageymslu sameiginlegt rými fyrir bílaþvott.  
 
Nánari upplýsingar veitir Geir Sigurðsson löggiltur fasteignasali í síma 655-9000, netfang: [email protected]

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.