Opið hús: 28. maí 2026 kl. 17:30 til 18:00.OPIÐ HÚS milli kl. 17.30 - 18.00 fimmtudaginn 28. maí n.k. VERIÐ VELKOMIN !
Húsasalan og Jón Örn Kristinsson löggiltur fasteignasali kynna:
Sérlega falleg og mikið endurnýjuð 67,2 fm, tveggja herbergja íbúð á jarðhæð með sér inngang, góðri afgirtri verönd auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu efst í Áslandinu í Hafnarfirði.
Nýlega var skipt um eldhús og sett nýtt vandað vinilparket á öll gólf sem ekki eru flísalögð.Samkv. þjóðskrá er íbúðin merkt 01-0102, birt stærð íbúðar 67,2 fm.
Nánari Lýsing: Forstofa með flísum á gólfi og góðum skápum. Björt stofa opin að eldhúsi með parketi á gólfi, falleg innrétting með innb. uppþvotavél. Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og góðum skápum. Baðherbergið er flísalagt, veggir og gólf, sturtu handklæðaofn og innrétting. Þvottaherbergi með flísum og góðum borðplássi. Innaf þvottaherbergi er geymsla með flísum á gólfi, nýtt í dag að hluta sem vinnuaðstaða.
Öll parketlögð rými erum með sama parketinu og eins eru öll flísalögð rými með sömu flísum á gólfi.
Stutt er í fjölbreytta þjónustu og verslanir á völlunum auk þess sem bæði leik og grunnskóli er í göngufæri.
Nánari upplýsingar veitir: Jón Örn Kristinsson, löggiltur fasteignasali í síma 898-4588, -
[email protected].